Skip to main content

Madonna di Campiglio og nágrenni

Duration: 8 Day(s) , 7 Night(s)

Package description

Madonna er einn þekktasti skíðabær Ítalíu sem er fallegt fjallaþorp í ríflega 1500 metra hæð yfir sjávarmáli. Þessi þúsund manna bær státar af fjölbreyttu skíðasvæði við allra hæfi, fallegum hótelum, glæsilegum veitingastöðum, verslunum og fallegu umhverfi. Úr miðbænum er stutt í lyftur og kláfa og skamman tíma tekur að komast upp í skíðalöndin ofan við bæinn. Sex mismunandi skíðasvæði eru aðgengileg frá Madonna di Campiglio. Brekkurnar eru bláar, rauðar og svartar- allt eftir getu hvers og eins. Hæstu brekkur eru í allt að 2600 metra hæð. Pradalago og Gröste svæðin eru þægilegust. Spinale og Cinque Laghi fela í sér fleiri áskoranir. Val di Sole og Pinzolo eru einnig spennandi valkostir innan lyftukerfis Madonna. Á svæðinu eru 150 km af brekkum, lyftur eru 58 talsins og eru opnar frá 8:30- 16:30 alla daga. Skíðaskólar eru margir í Madonna og boðið upp á skíðakennslu fyrir alla aldurshópa. Flest hótel eru í göngufæri við skíðalyftur og kláfa. Íslensk fararstjórn og akstur í boði.