Tenerife hefur upp á að bjóða allt það sem bestu sólarstaðir státa af.
Eyjan er þekkt fyrir einstaka veðursæld, hreinar strendur og fjölbreytta afþreyingu fyrir alla aldurshópa.
Á suðurhluta Tenerife skín sólin nánast alla daga ársins og þar er vinsælast að vera.
- Í Los Cristianos slær hjarta suðurhlutans þar sem ferðamannaiðnaðurinn byrjaði. Á því svæði búa eyjaskeggjar Tenerife en gamli bærinn er afar sjarmerandi með litlum þröngum göngugötum, flottum kaffihúsum, börum og úrvali verslana.
- Playa de Las Americas hefur að geyma hinn svokallaða “Laugaveg” en þar er frábært úrval verslana og veitingastaða á heimsmælikvarða.
- Costa Adeje svæðið er svo yndislegt og rólegt, með fallegum ströndum og stórglæsilegum gistingum.
Santa Cruz er höfuðborg Tenerife og hún er staðsett við sjávarsíðuna á norð-austur hluta eyjunnar, undir fjöllum Anaga tangans. Þetta er glaðleg heimsborg, full af orku, og litast af persónuleika eyjaskeggja. Í borginni, sem er samvaxin La Laguna, er ótal margt að skoða. Menningarlíf borgarinnar er talið einstakt enda mikið af áhugaverðum söfnum og listsýningum á heimsmælikvarða. Fyrir tónlistarunnendur er sinfóníuhljómsveit borgarinnar í fremstu röð Evrópuþjóða.
Borgin er byggð upp við fallegar breiðgötur, svo kallaðar „Ramblas“. Frábærar verslanir, verslunarmiðstöðar, veitingastaðir og kaffihús.
Í næsta nágrenni er einnig stærsta og glæsilegasta strönd eyjunnar „Las Teresitas“. Í einungis 15 mínútna ferð með sporvagni er komið til hinnar þekktu 500 ára gömlu fyrrverandi höfuðborgar Tenerife, La Laguna, sem er á heimsminjaskrá UNESCO fyrir einstaka sögu og fallegar byggingar.
Puerto de la Cruz er staðsett á norðurhluta eyjunnar og er einna þekktust fyrir að hýsa einn glæsilegasta dýragarð Evrópu, Loro Parque. Borgin hefur yfir sér rólegt yfirbragð þar sem gamli og nýi tíminn mætast á mjög sjarmerandi máta.
Gamli bærinn státar af afar fallegum gömlum byggingum og höfnin sem er í lykilhlutverki þjónaði vínútflutningi frá La Orotava dalnum í nokkur hundruð ár. Bærinn La Orotava er verðugur áningastaður þar sem eru stórglæsileg hús og hallir ásamt kirkjum sem skreyta bæinn. Við sjávarsíðuna er svo að finna afar fallegan sundlauga- og lystigarð, Lago Martiánes, sem þjónar borginni sem einskonar strandgarður, því fáar baðstrendur eru við borgina.
Í Puerto de la Cruz er einnig að finna mikið af skemmtilegum verslunum, en til að mynda er þar stærsta verslunarmiðstöð eyjunnar, La Villa sem er staðsett rétt fyrir utan bæinn. Einnig er þar elsti skrúðgarður (Botanical Garden) Tenerife.
Fallegar göngugötur, torg og garðar toppa svo þessa fallegu borg. Hér er mikið úrval af glæsilegum veitingastöðum, börum og kaffihúsum, bæði í gamla bænum sem og í næsta nágrenni hans.
AFÞREYING Á TENERIFE
Á daginn þarf enginn að láta sér leiðast enda nóg við að vera fyrir unga jafnt sem aldna. Gaman er að heimsækja einn glæsilegasta vatnsrennibrautagarð Evrópu, Siam Park, þar sem þú getur meðal annars rennt þér niður 28 metra rennibraut nánast í frjálsu falli sem endar með ferð í gegnum hákarlabúr! Eða farið á stærstu go-kart braut Evrópu.
Við nánast hverja strönd á Tenerife er mikið úrval vatnaíþrótta -> sjóskíði, bananabátar, siglingar og köfun svo eitthvað sé nefnt.
Tryggðu þér bestu verðin og veldu þá greiðsluleið sem hentar þér!
Viðskiptavinir geta valið mismunandi greiðslumöguleika - festu þína ferð með staðfestingargjaldi!
- Staðfestingargjald er 40.000 á mann, eftirstöðvar greiðast eigi síðar en 6 vikum fyrir brottför
- Greiðslukort - ein greiðsla
- Greiðslukort - skipta greiðslu á fleiri en eitt mismunandi greiðslukort (á ekki við um tímabil)
- Raðgreiðslusamningur
- Fjórar jafnar vaxtalausar greiðslur (3,5% lántökugjald að auki)
- Kortalán án vaxta (50% út, og 50% skiptast á næstu 3 mánuði auk 3,5% lántökugjalds)
- PEI - dreifing á greiðsluseðla til allt að 6 mánaða.